18.12.1934
Neðri deild: 63. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1660 í B-deild Alþingistíðinda. (1726)

31. mál, sala mjólkur og rjóma

Thor Thors:

Hv. þm. Mýr. hefir lýst greinilega yfir því, að landbn. líti svo á, að landfræðileg afstaða skuli ráða því, hverjir sitja skuli fyrir Rvíkurmarkaðinum. Vegna þessarar yfirlýsingar hans f. h. n. og ummæla hæstv. forsrh., sem gengur í sömu átt, mun ég ekki bera fram brtt. um þetta efni. Verði einhver misbrestur á þessu í framkvæmd, ætti að mega leiðrétta það á næsta þingi.