11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í B-deild Alþingistíðinda. (1780)

14. mál, tolllög

Emil Jónsson:

Ég þarf aðeins að segja örfá orð vegna brtt. á þskj. 346, frá iðnn. N. hefir orðið sammála um að leggja til, að tollur af sódavatni verði hækkaður upp í það að vera 30 aurar af hverjum lítra, og er þetta fram komið í sambandi við frv. til l. um gjald af innlendum tollvörutegundum.