11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1227 í B-deild Alþingistíðinda. (1781)

14. mál, tolllög

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég vil aðeins taka það fram, að ég er með fyrri brtt. á þskj. 327. Hinsvegar er ég á móti seinni brtt. á sama þskj. Ég mun ekki ræða þetta frekar að þessu sinni, en vísa til þess, sem ég sagði um þetta mál við 2. umr. þess.