29.10.1934
Neðri deild: 22. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1249 í B-deild Alþingistíðinda. (1818)
5. mál, útflutningsgjald
Frsm. meiri hl. (Ásgeir Ásgeirsson):
Mér þykir illt að hafa reitt hv. 3. þm. Reykv. til reiði, en ég verð að halda því fram, að hér sé ekki verið að setja neina sérlöggjöf um dönsk og færeysk veiðiskip, heldur bara sagt, að þau skuli ótvírætt hafa sömu skyldur og ísl. skip, vegna þess, að á því hefir stundum verið nokkur ruglingur.
Gjaldskyldan er ótvíræð um Íslendinga samkv. 1. gr., og er í raun og veru ótvíræð gagnvart Dönum og Færeyingum, þó 3. gr. væri felld niður, en 3. gr. er einungis sett til þess að girða fyrir, að nokkur misskilningur geti orðið í þessum efnum.
Það er af sömu ástæðu, sem við berum fram okkar brtt. um að láta þetta allt koma fram í einni gr., svo ekki þurfi að vitna á milli gr.