21.11.1934
Neðri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1349 í B-deild Alþingistíðinda. (1931)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Ég vil út af þeirri atkvgr., sem hér liggur fyrir, taka það fram, að við framsóknarmenn hér í d. höfum talað okkur saman um, hvaða afgreiðslu við getum fallizt á viðvíkjandi þeirri brtt., sem hér liggur fyrir. Og þar sem það er kunnugt, að það er á valdi sjálfstæðismanna og flm. till., hvort hún verður samþ., og með því að við höfum ekkert við það að athuga, að sjálfstæðismenn taki þátt í störfum n., ef þeir vilja það, þá hefir okkur komið saman um að taka þá afstöðu til till., að greiða ekki atkv.