21.11.1934
Neðri deild: 42. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1350 í B-deild Alþingistíðinda. (1935)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Ólafur Thors:

Ég vil leiða athygli að því, að það er ekki rétt hjá hæstv. fjmrh., að Sjálfstæðisflokkurinn hafi atkvgr. á valdi sínu. Ef d. er fullskipuð þarf 17 atkv. í meiri hl. Nú hefir Sjálfstæðisflokkurinn ekki nema 14 atkv. Það verða því með atkv. flm. ekki nema 15 atkv. Um atkvæði Bændafl. er mér ókunnugt.