07.12.1934
Neðri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1388 í B-deild Alþingistíðinda. (1978)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Forseti (JörB):

Mér hefir borizt áskorun frá 6 þingmönnum, svo hljóðandi:

„Undirritaðir alþingismenn í neðri deild óska þess, að greidd séu þegar atkvæði um, hvort umræðum skuli lokið þegar í stað, samkv. 37. gr. þingskapa.

Jónas Guðmundsson. Páll Zóphóníasson. Finnur Jónsson. Bergur Jónsson. Stefán Jóh. Stefánsson. Gísli Guðmundsson“.