07.12.1934
Neðri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1397 í B-deild Alþingistíðinda. (1991)

33. mál, skipulagsnefnd atvinnumála

Forseti (JörB):

Þá hefst fundur af nýju. (ÓTh:

Ég vil spyrja, hvaða 17 þm. voru við, þegar fundur hófst nú. Ég sé þá ekki). Hv. þm. G.-K. er einn af þeim. (ÓTh: Ég var á tali við kunningja minn hér inni í hliðarherberginu, svo að ekki var hægt að telja mig meðal þeirra, sem voru í d.) Ég hefi talið hv. þm. G.-K. með, þó að hann hefði ekki komizt lengra en í dyrnar. (ÓTh: Það er ekki leyfilegt að setja fund með færri en 17 þm.). Það eru nú að vísu engin ákvæði til um það, þó að þeirri venju hafi verið fylgt einnig nú.