12.10.1934
Neðri deild: 8. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1667 í B-deild Alþingistíðinda. (2020)

36. mál, þingsköp Alþingis

Frsm. (Bergur Jónsson):

Í þessu litla frv. um breyt. á þingsköpum er einungis farið fram á að bæta við 2. varaforseta í Sþ. Nauðsyn þess stafar af því, að nú eru fjárlög og fjáraukalög afgr. í Sþ. Allshn. hefir orðið sammála um að leggja til, að frv. verði samþ. óbreytt.