22.12.1934
Efri deild: 69. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2849 í B-deild Alþingistíðinda. (205)

Starfslok deilda

Magnús Guðmundsson:

Ég þakka hæstv. forsetu hin hlýlegu ummæli hans. Og í tilefni af því, að hann þakkar okkur fyrir prúðmannlega framkomu hér í deildinni, vil ég segja honum það, að sú framkoma er ekki annað en afleiðing af þeirri prúðmennsku og sanngirni, sem — hann ávallt hefir sýnt okkur. Ég vil að lokum óska honum góðrar heimkomu og þakka honum góða stjórn og góða samvinnu. (PM: Við tökum allir undir það).

(Þdm. stóðu allir upp).