22.12.1934
Neðri deild: 67. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2849 í B-deild Alþingistíðinda. (207)

Starfslok deilda

forseti (JörB):

Þetta mun nú verða síðasti fundur deildarinnar að þessu sinni. Ég þakka hv. þdm. góða samvinnu á þessu þingi og óska þeim gleðilegra jóla og nýárs, og utanbæjarþingmönnum óska ég góðrar heimkomu og árna þeim allrar blessunar og að við megum allir heilir hittast hér aftur.