22.12.1934
Neðri deild: 67. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2849 í B-deild Alþingistíðinda. (208)

Starfslok deilda

Ólafur Thors:

Þetta þing hefir ekki verið að öllu leyti ánægjulegt fyrir okkur sjálfstæðismenn. Þó vil ég ekki, að því ljúki án þess að við vottum hæstv. forseta þakkir fyrir hans ágætu fundastjórn. Það hefir ekki verið vandalaust að stjórna fundum á þessu þingi, en hann hefir, nálega undantekningarlaust, leyst það prýðilega af hendi, að ég tel, og í alla staði drengilega. Óska ég honum gleðilegra jóla og góðrar heimkomu og árna honum allrar blessunar.