02.10.1934
Sameinað þing: 1. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 11 í B-deild Alþingistíðinda. (21)

Kosning til efrideildar

Pétur Magnússon:

Ég get ekki séð ástæðu til að bíða með kosninguna, eins og þingmenn hafa verið að skjóta fram, þótt ekki séu eins mörg nöfn á listum eins og kjósa á til Ed. Afleiðingin af því, að ekki er stillt upp nægilega mörgum við hlutfallskosningu, sýnist hljóta að verða sú, að kjósa verður einn mann með óhlutbundinni kosningu.