13.10.1934
Neðri deild: 9. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1675 í B-deild Alþingistíðinda. (2100)
60. mál, forðagæsla
Forsrh. (Hermann Jónasson) [óyfirl.]:
Ég ætla ekki að blanda mér neitt sérstaklega inn í þær umr., sem hér hafa farið fram. En út af því, sem fram kom hjá hv. þm. Borgf., að stj. hefði í hyggju að flytja inn hey frá útlöndum, þá skal ég taka það fram, að um það hefir engin ákvörðun verið tekin. Hinsvegar hefir stj. talið rétt að leita fyrir sér um kaup á heyi í því landi , sem hættan er minnst, Noregi, ef til þess skyldi koma, að vandræðin yrðu svo mikil, að þingið féllist á að flytja inn hey. En ég er sammála hv. þm. Borgf., að það kemur ekki til mála að flytja inn hey fyrr en rannsóknir hafa farið fram og sýnt er, að grípa verður til þess sem hins ýtrasta þrautaráðs. Þessi aths. hv. þm. er því ástæðulaus, því stj. hefir ekki tekið þá afstöðu, heldur þvert á móti.