29.11.1934
Sameinað þing: 16. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 489 í B-deild Alþingistíðinda. (217)

168. mál, fjáraukalög 1933

Fjmrh. (Eysteinn Jónsson):

Þetta frv. er samið eftir sömu reglum og slík frv. áður. Að öðru leyti læt ég nægja að vísa til þeirrar aths., sem fylgja frv. Legg ég til, að frv. verði vísað til fjvn. að lokinni umr.