05.11.1934
Efri deild: 30. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1699 í B-deild Alþingistíðinda. (2210)

65. mál, verslunarlóð Ísafjarðar

Frsm. meiri hl. (Sigurjón Á. Ólafsson):

Ég skal ekki hafa mörg orð um þetta litla frv. Það er að vísu nýmæli, að hér er farið fram á, að verzlunarlóð kaupstaðar sé minnkuð. Ástæðan er sú, að mikið af þeirri landvíðáttu, sem fylgir núv. kaupstaðarlóð, er talin nytjalaus. N. sér ekki ástæðu til að meina þeim þetta og leggur til, að frv. verði samþ.