27.10.1934
Efri deild: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1761 í B-deild Alþingistíðinda. (2316)
44. mál, kosningar í málefnum sveita og kaupstaða
Jón Baldvinsson:
Mér skilst, að aðfinnslur hv. 1. þm. Reykv. byggist á því, að honum þyki of oft nefndur bæjarstjóri og bæjarstjórn í gr. Það þykir honum spaugilegt, að þessi orð skuli koma fyrir einum fjórum sinnum í gr. Ég get ekki annað séð en að efni gr. sé einmitt skýrara fyrir það, að orðin sjálf eru tekin upp hvað eftir annað, heldur en að vísa til þeirra með öðrum orðum. Efni gr. er á þá leið, að þegar bæjarstjórn er óstarfhæf og getur ekki komið sér saman um bæjarstjóra, sem hefir fylgi meiri hl. í bæjarstjórn, þá geti atvmrh. fyrirskipað nýjar bæjarstjórnarkosningar. Ég sé ekki annað en að þetta sé vel skiljanlegt í gr., jafnvel þó að bæjarstjóri og bæjarstjórn séu nefnd fjórum eða fimm sinnum.