03.11.1934
Neðri deild: 27. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1938 í B-deild Alþingistíðinda. (2379)

110. mál, mat á fiskúrgangi

Flm. (Jónas Guðmundsson):

Ég ætla ekki að hafa langa framsögu fyrir þessu máli. Í grg. frv. er gerð sæmilega ýtarleg grein fyrir nauðsyn þess, og vænti ég, að hv. þdm. taki tillit til þess, sem þar er sagt, og að hv. sjútvn. fái að segja álit sitt um frv. áður en frekari umr. verða um það hér á þingi.