05.12.1934
Efri deild: 53. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1941 í B-deild Alþingistíðinda. (2448)

149. mál, útsvar

Frsm. (Bernharð Stefánsson):

Það getur vel verið, að nokkuð sé til í því, sem hv. þm. Dal. segir. Að vísu eru samgöngur orðnar svo góðar hér á landi, að ég geri ekki ráð fyrir, að 2 mánuðir verði of stuttur tími. Samt sem áður er ekki nema sjálfsagt, að n. taki þessa aths. hv. þm. til greina og athugi hana milli umr., og skal ég lofa því f. h. n., að hún taki þetta til athugunar.