12.11.1934
Neðri deild: 34. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1957 í B-deild Alþingistíðinda. (2575)

124. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi

Frsm. (Bjarni Bjarnason):

Ég vil taka það fram fyrir mitt leyti, og geri ráð fyrir, að n. öll muni vera sama sinnis, að till. á þskj. 364 mun ég ekki taka aftur. Hinsvegar hefi ég ekkert að segja um þær breyt., sem fram hafa komið, annað en það, að ég tel líklegt, að þetta sé hentugt, og ég vil ekki beita mér á móti því, að till. verði samþ., ef hv. d. sýnist það ráðlegt.