21.11.1934
Neðri deild: 24. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1961 í B-deild Alþingistíðinda. (2583)

124. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi

Frsm. (Bjarni Bjarnason):

Fyrir hönd samgmn. vil ég taka það fram, að hún hefir ekki getað athugað þessa brtt. Ég hefi borið mig saman við hv. form. n., og hefir okkur komið saman um að óska þess, að umr. um málið verði frestað, til þess að n. gefist kostur á að athuga brtt. þessa.