11.12.1934
Efri deild: 58. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1966 í B-deild Alþingistíðinda. (2599)

124. mál, hlutafjárframlag fyrir h/f Skallagrím í Borgarnesi

Forseti (EÁrna):

Útbýtt er í deildinni brtt. á þskj. 751. Þar sem brtt. þessi er of seint fram komin, verður að veita afbrigði frá þingsköpum, svo að hana megi taka til meðferðar.

Þá hefir mér og borizt skrifl. brtt. við þessa till., svo hljóðandi: [Sjá þskj. 769].

Þessi brtt. er einnig of seint fram komin, auk þess sem hún er skrifl., og þarf til þess tvenn afbrigði, að hana megi taka til meðferðar.