28.11.1934
Neðri deild: 47. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2018 í B-deild Alþingistíðinda. (2712)

104. mál, síldarverksmiðjur ríkisins

Jóhann Jósefsson:

Ég véfengi ekki, að það tímabil, sem hv. form. sjútvn. tiltók, sé rétt. Ég man ekki, hversu langt það var, þó að mér sé nær að halda, að hann hafi nefnt of langan tíma. En ég vil aðeins geta þess, að það er tvennt ólíkt, að fá í hendur handrit og vera spurður, hvort maður vilji fallast á það eða ekki, eða að fá málið til athugunar í n., þar sem maður getur komið með brtt. og þessháttar.