16.11.1934
Neðri deild: 38. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1849 í B-deild Alþingistíðinda. (2716)
119. mál, tollundanþága fyrir tunnuefni og hamp
Bjarni Ásgeirsson:
Ég er mótfallinn þeirri brtt. hv. þm. A.-Húnv. að leyfa tollfrjálsan innflutning á trjáplöntum. Allir, sem eitthvað þekkja til þessara mála, vita, að hér er nær eingöngu að ræða um luksusplöntur í skrautgarða. Þeir, sem annast innflutning þessara trjáplantna, hafa ekki annað fyrir augum en að græða á þeim, og það er með öllu tryggingarlaust, að þær séu góðar eða heppilega valdar fyrir íslenzkan jarðveg.
En ég býst við, að hv. þm. A.-Húnv. flytji þessa brtt. í sambandi við annað frv., sem hann er flm. að, en það er frv. um einkasölu ríkisins á erlendum trjáplöntum og trjáfræi, og á að verja ágóðanum til að efla skógrækt í landinu. Þegar það frv. er orðið að lögum, á þessi breyt. rétt á sér, og því vil ég beina því til hv. flm. till., að hann setji þetta ákvæði inn í það frv., því að þá fylgist að nauðsynin á þessari breyt. og líkindin til, að hún komi að notum.