16.11.1934
Neðri deild: 38. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1850 í B-deild Alþingistíðinda. (2718)

119. mál, tollundanþága fyrir tunnuefni og hamp

Jón Pálmason:

Það er rétt hjá hv. þm. Mýr., að þessi brtt. mín stendur í sambandi við frv. það, sem ég flyt um einkasölu á trjáplöntum. En vegna þess að hér er um tollundanþágu að ræða, álít ég, að ákvæði það, sem í brtt. minni felst, eigi heima í þessu frv. fremur en í hinu.