02.11.1934
Neðri deild: 26. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1868 í B-deild Alþingistíðinda. (2793)
75. mál, varðskip landsins og skipverja á þeim
Hannes Jónsson [óyfirl.]:
Því hefir verið lýst yfir, að hér sé aðeins um launaspursmál að ræða í þessu frv. Ég vil í sambandi við það gera fyrirspurn til hæstv. stj. um það, hvað liður störfum launamálanefndarinnar, hvort ekki má búast við, að árangurinn af starfi hennar verði lagður fyrir þetta þing, hvort sem það nú verður í frv.formi frá n. sjálfri eða frv. frá hæstv. stj. Mér finnst óviðkunnanlegt að vera að gera breyt. í einstöku launamáli, þegar alveg stendur fyrir dyrum að gera upp launalöggjöfina í heild sinni. Þó eitthvert smávægis misræmi kunni að vera í þeim launagreiðslum, sem hér er um að ræða, ætti lagfæring á því að geta beðið eftir lausn launamálanna yfirleitt. Því þó eitt og eitt atriði sé fært til lagfæringar af þeim, sem ástæða kann að vera til að breyta, þá verður vitanlega meira eða minna eftir af því, sem laga þarf.
Ég vænti, að hæstv. stj. gefi upplýsingar um, hvað starfi þessarar n. liður og hvort maður má ekki fara að búast við að sjá eitthvað frá henni. Ég hefi heyrt því fleygt, að n. væri þegar búin að skila áliti, en það sést ekkert frá hæstv. stj., sem bendir til, að árangur ætli að verða af því.