08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1870 í B-deild Alþingistíðinda. (2803)
75. mál, varðskip landsins og skipverja á þeim
Frsm. (Páll Þorbjörnsson):
Ég bjóst ekki við því, að eftir að þetta mál er búið að ganga í gegnum Ed. og komið þetta langt hér, að þá yrði gerð tilraun til þess að skera það niður. En sú hefir nú orðið raunin á, að tilraun er gerð til þess með hinni rökst. dagskrá frá hv. þm. Borgf. Rökin, sem hann færir fyrir þessu, eru þau, að farið hafi fram athugun á launagreiðslum ríkisins yfirleitt, og muni hún verða tekin fyrir á næsta þingi. Það er engin ástæða til þess að fresta því að bæta launakjör þessara manna, þó fyrirhuguð sé gagngerð endurskoðun á launagreiðslum ríkisins yfir höfuð. Án tillits til annara starfsmanna ríkisins er hægt að færa laun þessara manna til samræmis við það, sem er á öðrum skipum ríkisins. Það hefir verið drepið á það áður, að það er gífurlegt ósamræmi í launagreiðslum varðskipanna og strandferðaskipanna. Það er ekki vandasamara eða á neinn hátt ábyrgðarmeira starf að vera á verzlunarskipunum en varðskipunum, nema síður sé. Skipverjum varðskipanna eru á ýmsan hátt lagðar frekari skyldur á herðar en öðrum sjómönnum, og væri því sennilega frekar ástæða til að launa þá hærra en starfsbræður þeirra á öðrum skipum. Ég vil benda á það, að 1. vélstjóri á varðskipunum hefir í byrjunarlaun 474 kr., en 2. vélstjóri á strandferðaskipum 498 kr. Þarna hefir 2. vélstjóri á strandferðaskipi 24 kr. hærri laun en 1. vélstjóri á varðskipi. Þetta hefir orðið þess valdandi, að þegar yfirstjórn þessara skipa hefir þótt hentugt að flytja menn milli þeirra, þá hefir það mætt mikilli andúð, sérstaklega ef flytja hefir átt mann af strandferðaskipi yfir á varðskip. Ég veit um eitt tilfelli, þar sem stýrimaður á strandferðaskipi neitaði að fara yfir á varðskip, nema honum væru tryggð sömu laun og hann hafði áður. En ef gera á undantekningar um kaupgreiðslu á sama skipi, veldur það eðlilegri óánægju. Það er líka ósamræmi í því, að 2. vélstjóri af strandferðaskipi sé fluttur yfir á varðskip og hafi þar hærri laun en yfirmaður hans, 1. vélstjóri. Það má öllum gera það ljóst, að það er ekki farið fram á neina ósanngirni, þó að þessu sé kippt í lag. Ég vænti þess, að hv. d. samþ. frv. eins og það hefir komið frá Ed. og sjútvn. hefir lagt til, að það verði samþ.