15.12.1934
Neðri deild: 61. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2275 í B-deild Alþingistíðinda. (2923)

106. mál, vélgæsla á mótorskipum

Bergur Jónsson:

Ég vil benda hv. þm. Borgf. á, að það er einkennilegt, að sjútvn. Ed., sem sýnt hefir áhuga fyrir því, að mál þetta nái fram að ganga, skuli hafa borið fram þál. um að skora á stj. að undirbúa fyrir næsta þing breyt. á vélgæzlulögunum. Það bendir til, að áhugi hennar fyrir máli þessu sé jafnvel ekki eins mikill og maður skyldi ætla. Sá eini, sem virðist því hafa óskiptan áhuga fyrir að koma málinn fram, er hv. þm. Borgf.