17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2277 í B-deild Alþingistíðinda. (2945)

106. mál, vélgæsla á mótorskipum

Bjarni Bjarnason:

Ég hefði gjarnan viljað leiða þetta mál hjá mér, en af því að hæstv. forseti er strangari í dag en venja er til, mun ég gera grein fyrir atkv. mínu á þá leið, að ég fæ ekki skilið, að maður, sem getur farið með 300 hestafla vél, geti ekki eins farið með 400 hestafla vél, og segi ég því nei.