24.11.1934
Neðri deild: 45. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2287 í B-deild Alþingistíðinda. (3044)

148. mál, stimpilgjald

Thor Thors:

Ég vil aðeins benda á, að það vantar þrjá þdm. úr andstæðingaflokkum hæstv. stj. á þennan fund. Sé ég því ekki, hvaða ástæðu stj. hefir til þess að mælast til, að einhverjir úr andstöðufl. láti vera að greiða atkv. í þessu máli. Mér skilst, að hæstv. forseti sé búinn að úrskurða, að atkvgr. skuli nú fara fram, og þarf þá ekki meira um þetta að ræða.