14.12.1934
Neðri deild: 59. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2084 í B-deild Alþingistíðinda. (3214)
58. mál, Kreppulánasjóður
Páll Zóphóníasson:
Ég skrifaði undir nál. með fyrirvara. Sá fyrirvari var í því fólginn, að ég óskaði heldur eftir því, að inn í sjálft frv. kæmu ákvæði, sem tryggðu, að þessu fé, sem ætlazt er til, að kreppulánasjóðsstjórnin fái til umráða til þess að mæta þeim töpum, sem ábyrgðarmenn lántakenda í Kreppulánasjóði verða fyrir, verði ekki varið til þess að greiða þeim ábyrgðarmönnum, sem sýnilega eru svo vel stæðir, að þeir geta staðið undir sínum ábyrgðum án þess að finna neitt verulega til þess. Ég kynnti mér þetta mál uppi í Kreppulánasjóði og komst að raun um, að það er kringum 1 millj., sem búið er að færa af lántakendum yfir á ábyrgðarmenn, og þar af er um ¼ millj. hreppsábyrgðir. Og búizt er við, að þessi upphæð verði um 1½ millj., sem færð er af lántakendum yfir á ábyrgðarmenn, þegar öll lán verða afgreidd. Nú eru margir af þessum ábyrgðarmönnum prýðilega stæðir fjárhagslega og geta því vel staðið undir sínum ábyrgðum, og það styrkir mig í þeirri trú, að rétt sé að taka þetta ákvæði upp í frv. — Þegar ég talaði við kreppulánasjóðsstjórnina, kom þar hinsvegar í ljós, að hún hafði hugsað sér þetta framkvæmt þannig, að láta búa til skrá yfir hverja einustu lánstofnun, sem ætti ábyrgðarkröfur á menn og hve ábyrgðarkröfurnar væru háar á hvern einstakan, og þegar það væri búið, væri reynt að meta, hvað hver þessara ábyrgðarmanna gæti staðið undir miklu af sínum ábyrgðum, og að því búnu væri reynt að ná samkomulagi við viðkomandi lánstofnun um að gefa eftir af ábyrgðarkröfum, eftir því sem nauðsynlegt þætti, til þess að þeir, sem ábyrgðirnar féllu á, gætu þó haldið atvinnu áfram án verulegs hnekkis.
Stjórn Kreppulánasjóðs sagði mér, að hún mundi taka fullt tillit til þeirra manna, sem gætu sjálfir staðið undir sínum ábyrgðum, og í trausti þess, að það verði gert, fell ég frá því að koma með brtt. við sjálft frv. og mun fylgja því óbreyttu gegnum þingið, því að það miðar til bóta, þó að æskilegt hefði verið að fá því breytt eins og ég hefi lýst. En þar sem stjórn Kreppulánasjóðs mun taka þetta til greina við framkvæmd málsins, þá get ég fallið frá því að bera fram brtt. við frv.