14.11.1934
Neðri deild: 36. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2114 í B-deild Alþingistíðinda. (3259)
77. mál, áfengislög
Gísli Sveinsson:
Herra forseti! Þar sem ákvæði þessarar brtt. yrði í praksis óframkvæmanlegt hér á landi, með því að ógerlegt er í öllum slíkum tilfellum, sem hér geta komið til, að ná til læknis í tæka tíð, er geti framkvæmt tilheyrandi blóðrannsókn, og þar sem hér er í efni máls einskonar kollvörpun á áður viðteknum meginreglum, sem sé að vafinn á rannsókn komi til góða sakborning — in dubio pro reo, eins og annar hv. flm. till. mun bera skyn á —, en málefnið að öðru leyti interessant, þá vildi ég leyfa mér að óska þess, að brtt yrði tekin aftur til 3. umr.