10.12.1934
Neðri deild: 55. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2334 í B-deild Alþingistíðinda. (3327)

49. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Thor Thors:

Ég á tvær brtt. á þskj. 550, aðra um línu frá Ólafsvík að Brimilsvöllum, og hefir samgmn. tekið hana upp í sínar till., og kann ég henni þakkir fyrir, enda er hún í samræmi við till. landssímastjóra. Hina till. hefir n. ekki séð sér fært að taka upp, en hún er um línu frá Breiðabólstað út í Brokey, og geri ég ráð fyrir að taka hana upp aftur við 3. umr. En ég vil leyfa mér að spyrja hv. frsm., af hvaða ástæðum þessi till. hefir ekki verið tekin upp.