27.11.1934
Efri deild: 48. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2189 í B-deild Alþingistíðinda. (3329)

77. mál, áfengislög

Þorsteinn Þorsteinsson:

Ég sting upp á því, að þessu máli verði vísað til fjhn., af því að ég tel þetta mál vera ekki lítið fjárhagsmál, enda þótt það væri í allshn. í Nd. Ég get ekki séð, að slíkt brjóti neitt á móti þingsköpum, þó að þar sé talað um, að að jafnaði skuli vísa málum til samskonar n. í báðum þd.