17.12.1934
Neðri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2339 í B-deild Alþingistíðinda. (3364)
49. mál, ritsíma- og talsímakerfi
Þorbergur Þorleifsson:
Ég á brtt. á þskj. 814, sem ég tók aftur til 3. umr. Hv. samgmn. hefir ekki getað fallizt á hana og færir sem ástæðu, að landssímastjóri hafi ekki viljað mæla með henni, af því að herforingjaníðið hefir ekki enn kortlagt Lónið, en þar er þessi lína fyrirhuguð. Ég er hv. samgmn. þakklátur fyrir að hafa tekið til greina 3 af brtt. mínum, enda mælti landssímastjóri með þeim. Að hann ekki mælti einnig með þessari, er aðeins af þeim sökum, er ég áður gat um. Hv. þm. V.-Sk., hv. frsm. samgmn. í þessu máli, sagði, að ég hefði fengið miklu framgengt á þessu þingi. Er það fyrst og fremst af því, að ég hefi ekki farið fram á annað en það, sem sanngjarnt er, og svo er um þessa brtt. En það er ekki rétt hjá hv. þm., að þetta þoli bið. Um þessa línu stendur líkt á og um línuna frá Hólum að Syðra-Firði. Sjómenn hafa óskað eftir þessari línu, því að þarna getur verið afdrep fyrir báta í vissum áttum. Er það nauðsynlegt fyrir björgunarstarfsemina, að sími sé sem víðast með sjónum, og þarna fara vélbátar oft inn í vondum veðrum. Vænti ég því, að hv. d. sjái sér fært að taka þessa línu upp í símalögin.