18.12.1934
Neðri deild: 63. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2343 í B-deild Alþingistíðinda. (3391)

49. mál, ritsíma- og talsímakerfi

Frsm. (Gísli Sveinsson):

Mér er kunnugt um það, að allmargir hv. þdm. munu ekki hafa fylgzt með framsögu minni af nefndarinnar hálfu. Mun ég því úr sæti mínu geta afstöðu nefndarinnar til einstakra brtt. um leið og þær eru bornar undir atkv. (TT: Engar „agitatiónir“. — Forseti: Hér er ekki um neinar „agitatiónir“ að ræða, heldur aðeins skýringar og upplýsingar. — MT: Og svo erum við líka sjálfstætt fólk).