15.12.1934
Sameinað þing: 23. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 362 í B-deild Alþingistíðinda. (342)

1. mál, fjárlög 1935

Forseti (JBald):

Ég vildi gefa hv. frsm. minni hl. kost á að taka til máls nú, að lokinni ræðu frsm. meiri hl., en það hefir orðið að samkomulagi, að hann flytji sína ræðu á næsta fundi í Sþ., því að nú er ákveðið að fresta þessu máli og taka það út af dagskrá, sem ég hér með geri. Næsti fundur í Sþ. verður ákveðinn með dagskrá.