05.12.1934
Neðri deild: 51. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2365 í B-deild Alþingistíðinda. (3468)
150. mál, fiskimálanefnd
Frsm. (Finnur Jónsson):
Ég vil benda á, að mál þetta á eftir að ganga gegnum þrjár umr. í Ed., eftir að það fer héðan. Er því nóg tækifæri ennþá fyrir þá, sem ekki hafa hirt um til þessa að koma með brtt., að koma þeim að. Að fara að tefja málið til þess að bíða eftir umsögn Landsbankans og sölusamlagsins, sé ég enga ástæðu til. Það er algengt, að leitað sé umsagnar ýmissa stofnana um mál, en þegar lengi dregst að fá þær, eru málin venjulega tekin fyrir. Nú hefir það dregizt í 4 daga fram yfir það, sem nefndin óskaði, að fá álit þessara aðila; virðist því engin ástæða til þess að bíða eftir því lengur. Ég mun undir umr. skýra frá umsögn Útvegsbankans, sem mér hefir nýlega borizt. Að svo mæltu óska ég, að málið verði tekið fyrir nú þegar.