19.12.1934
Efri deild: 66. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2584 í B-deild Alþingistíðinda. (3483)
80. mál, eftirlit með opinberum rekstri
Jónas Jónsson [óyfirl.]:
Ég þarf ekki að segja mikið til varnar frv., því hefir verið svo vel tekið, og samkomulag var milli flokkanna í Nd. um það. Þetta er heldur ekki að furða, því að frv. bendir á nýja leið til þess að bæta úr göllum á okkar stjórnarfari.
Hv. 1. þm. Skagf. vildi halda því fram, að ef þetta væri illa borgað. mundi lítil vinna verða í það lögð. Hér er þó fjöldi manna, sem vinna mikið starf fyrir litla borgun, t. d. hreppstjórar og oddvitar, sem ætlazt er til, að inni þennan þegnskap af hendi án þess að full laun komi fyrir. Hv. þm. er þetta kunnugt sem fyrrv. sýslumanni. Hann hélt því fram, að hér væri verið að blanda saman löggjafarvaldinu og framkvæmdarvaldinu og hélt sig að þeirri þrískiptingu sem mikið hefir borið á síðan seint á 18. öld. Hann veit þó, að þessu er blandað saman. Hann hefir sjálfur með röggsemi blandað þessu saman, er hann var bæði dómari og hafði framkvæmdarvald sýslumanns á hendi í Skagafjarðarsýslu. Okkar aðstaða er þannig vegna dreifbýlis og fátæktar, að ekki er hægt að koma á fullkominni verkaskiptingu. Ég játa, að koma mætti á eftirliti með ríkisstofnunum á annan hátt, t. d. með því að auka starfskraftana í stjórnarráðinu, en húsið rúmar ekki fleiri en þar eru, og með núv. starfsfólki væri ekki hægt að anna þessu. Ég er viss um, að hv. 10. landsk., sem hafði umsjón með þessum fyrirtækjum, viðurkennir, að vitaskuld er ómögulegt fyrir einn mann að vera kontrollerandi í þessu efni. Hv. 1. þm. Skagf. hefir sem ráðh. haft yfirumsjón með varðskipunum. Ég býst við, að hann hafi ekki haft tíma til að kynna sér ýtarlega allt þeim viðvíkjandi. Ég hafði heldur ekki tíma til þess, er ég var ráðh. Ef húsakostur væri betri í stjórnarráðinu og Alþingi vildi setja hjálparstarfsmenn, er ættu að framkvæma eftirlitið, þá væri það vegur, en það mundi verða dýrt. Stjórnarráðið fékk sér t. d. fulllærðan endurskoðanda og varð að borga honum allhátt kaup, eins og slíkum mönnum var borgað annarsstaðar. Ef margir menn yrðu fengnir, er ég hræddur um, að eftirlitið yrði dýrara en ráð er fyrir gert í frv. Ef frv. nær fram að ganga, er viðurkennt, að hér er fengið ódýrt aðhald, en þó nokkuð áhrifamikið. Það er gert ráð fyrir því, að í eftirlitinu taki þátt þeir flokkar, sem hafa aðalfylgið í þinginu. Ef tveir menn ættu að vera í n., kosnir meirihl.kosningu, væri andstaða hv. 1. þm. Skagf. skiljanlegri. En það er þvert á móti. Þrír menn eru í n. og flokkarnir eiga sinn manninn hver, til þess að skapað verði alhliða aðhald.
Ég vil nefna nokkrar stofnanir, sem núv. stjórnarflokkar hafa átt mestan þátt í að byggja upp, í þeirri trú, að þær yrðu til almennra nytja, t. d. ríkisútvarpið, tóbakseinkasalan, landssmiðjan og ríkisprentsmiðjan. Okkur er ljóst, að á þeim flokkum hvílir sama skylda, að búa svo um, að þær komi að sem mestu gagni fyrir þjóðina og séu tryggilega reknar. Og mér finnst ómögulegt annað en að hv. 1. þm. Skagf. meti það nokkurs, að einmitt andstöðuflokkum stj. er með þessu gefið tækifæri til að hafa eftirlit með þessum fyrirtækjum og fylgjast með rekstri þeirra. Þeim ætti að vera þetta kærkomið, því fremur, sem þeir hafa sýnt þessum stofnunum mikla mótstöðu og andúð. En við í stjórnarflokkunum látum það koma fram með þessu, að við erum ekkert hræddir við athugun og gagnrýni andstæðinga okkar, og höfum engu að leyna. Við lítum svo á, að það sé æskilegt, að þeir flokkar, sem af principi og hagsmunaástæðum eru andvígir þessum stofnunum og öðrum af sama tægi, hafi aðstöðu endurskoðandans til þess að gera sínar aths., segja frá því, sem þar er að gerast, og gefa minni hl. eða andófsmönnum stj. á hverjum tíma aðstöðu til að skapa þessum rekstri heilbrigt aðhald með rökstuddri krítík, sem þá kemur fram í skýrslum eða aðfinnslum á Alþingi. Ég þykist þess vegna viss um, að hv. 1. þm. Skagf. muni sjá það við nánari athugun, að þetta er einmitt gott fyrir hans flokk, á meðan hann er í minni hl. og í stjórnarandstöðu. En frá flokkssjónarmiði er það enginn ávinningur fyrir stjórnarflokkana. Þetta frv. er þó ekki borið fram til þess að gera fyrirtækin þóknanlegri fyrir andstöðuflokkana, heldur af því, að stjórnarflokkarnir álíta, að það sé heppilegt að hafa eftirlit með opinberum rekstri. Í ensku máli er líka talað um andstöðuflokka hans hátignar konungsins, þá sem eru á móti stjórninni. Kónginum er ekki einungis tignaður sá flokkur, sem stj. styðst við þingmeirihlutinn , heldur andstæðingarnir líka, af því að kritíkin þykir svo nauðsynleg og sjálfsögð í stjórnmálabaráttunni. Ég skal benda á það, að við tvær af þessum eldri ríkisstofnunum eru nú þriggja manna stjórnir, sem mundu falla niður, þegar þetta frv. er orðið að lögum. Fyrir Gutenberg er þriggja manna nefnd, og hafa nefndarmenn, hver um sig, 500 kr. þóknun á ári fyrir störf sín. Fyrir landssmiðjunni er einnig þriggja manna stjórnarnefnd, og þeir hafa um 600 kr. á ári fyrir störf sín, hver um sig.
Eftir því sem gert er ráð fyrir í frv., þá hygg ég, að allur kostnaðurinn við þessi þrjú ráð yrði eitthvað dálítið minni en hann hefir verið við þær tvær stjórnarnefndir, sem áður hafa starfað og nú verða lagðar niður.
Á aukaþinginu síðastl. haust var samþ. að skipa eina yfirstjórn allra sjúkrahúsa í landinu, og hygg ég, að hv. 1. þm. Skagf. hafi undirbúið það sem heilbrigðismálaráðh. með landlækni, og er það meiningin, að þessi yfirstjórn spítalanna taki til starfa nú um áramótin. Að vísu er henni dálítið öðruvísi fyrir komið. En landlæknir hefir játað við mig í einkasamtali, að hann gæti hugsað sér, að spítalanefndinni yrði breytt í samskonar ráð og frv. fjallar um, af því að hann áleit, að starfssvið hennar væri sama eðlis. Vegna þess að ég er einn af þeim, sem hafa unnið að samningu þessa frv., þá vildi ég skýra það í fáum dráttum, áður en til atkvgr. kæmi. Og mér finnst, að margt bendi til þess, að afstaða hv. 1. þm. Skagf. breytist til fylgis við þetta frv., þegar hann hugsar málið betur, af því að það gefur andstöðuflokkum stj. betri aðstöðu til að fylgjast með rekstri þessara stofnana.