19.12.1934
Neðri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2656 í B-deild Alþingistíðinda. (3584)

156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna

Forseti (JörB):

Ég vil biðja hv. dm. að athuga það, að ég hefi ekki neitt úrskurðarvald í þessu efni, samkv. ákvæðum þessarar gr. Þegar atkvgr. fer fram um till., þá dæmir hver einasti þm. um málið, eftir því hvernig hann lítur á það, og ég get þess vegna ekki annað gert en að bera till. upp.