19.12.1934
Neðri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2658 í B-deild Alþingistíðinda. (3597)

156. mál, aldurshámark opinberra embættis- og starfsmanna

Ólafur Thors:

Hv. þm. V.-Sk. hefir tekið fram að mestu það, sem mér þótti ástæða til að vekja athygli á, að það kenndi nokkurs misskilnings hjá hv. þm. Barð., og vildi ég beina því til hans, hvort hann vildi ekki breyta sínu atkv. eftir að hafa fengið þessa skýringu frá hv. þm. V.-Sk.