05.12.1934
Neðri deild: 51. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2366 í B-deild Alþingistíðinda. (3615)

150. mál, fiskimálanefnd

Atvmrh. (Haraldur Guðmundsson):

Þetta mál hefir nú dregizt lengi. Frestur sá, sem minni hl. sjútvn. hefir fengið, er orðinn nokkuð langur, svo ég sé ekki ástæðu til að fresta þessari umr. nú. Ég held líka, að ef búizt er við langri umr., mætti byrja á henni núna og skrifl. brtt. gætu komið fram undir umr. Ég sé því enga ástæðu til að fresta þessari umr.