08.12.1934
Neðri deild: 54. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2405 í B-deild Alþingistíðinda. (3644)

150. mál, fiskimálanefnd

Ásgeir Ásgeirsson:

Ef þessar tvær brtt. mínar, a og c, verða samþ., þá er hér um að ræða möguleika fyrir einkasölu fiskframleiðenda, sem er samskonar og sú, er Richard Thors og Sveinn Björnsson sendiherra óskuðu eftir, þegar þeir voru á Spáni. Þeir sendu mér skeyti um, að þeir teldu einkaútflutning æskilegan. Í þessari einkasöluheimild 12. gr. er, ef brtt. mínar verða samþ., ekki fólgin meiri hætta en í till. þeirra um einkasölu fiskframleiðenda. — Ég segi já.