19.12.1934
Neðri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2486 í B-deild Alþingistíðinda. (3761)

69. mál, eftirlit með sjóðum

Héðinn Valdimarsson:

Ég ætla ekki að tefja umr. um þetta mál, en aðeins leggja fram skrifl. brtt. við þskj. 676, samkv. bendingu hv. 6. þm. Reykv.

Viðvíkjandi þeim orðum, sem hv. þm. G.-K. beindi til mín, þess efnis, hvort það tefði ekki málið í Ed., ef þessar brtt. mínar og samflokksm. míns yrðu samþ., verð ég að lýsa yfir því, að ég get ekkert um það fullyrt. Ég hefi ekki talað við samflokksmenn mína þar, en ég vænti þess, að þeir hindri ekki afbrigði og tefji ekki málið. Vona ég, að hin rökstudda dagskrá verði samþ.