27.11.1934
Neðri deild: 46. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2521 í B-deild Alþingistíðinda. (3807)
76. mál, einkasala á bifreiðum o.fl.
Fjmrh. (Eysteinn Jónsson) [óyfirl.]:
Þó að þetta frv. komi nú fyrst fyrir þessa hv. þd., hygg ég, að hv. þdm. hafi nokkuð kynnt sér það og fylgzt með gangi þess í hv. Ed. og muni því ekki vera þörf á langri framsögu. Það má í raun og veru færa fram tvær aðalástæður fyrir því, að frv. þetta er fram komið, og get ég ekki gert mun á þeim, hvora á að telja fremri. Önnur ástæðan er sú, að vörur þær, sem um er að ræða, eru mjög margháttaðar. Teg. bíla og mótorvéla eru mjög margar og þar að auki fylgir hverri teg. mesti aragrúi af varahlutum, sem gerir alla notkun þessara þarflegu áhalda mjög erfiða, og hefir það í för með sér, að óeðlilega mikið fé er bundið í þessari verzlun. Önnur ástæðan fyrir þessu frv. er því sú þörf, sem á því er að skipuleggja þessa verzlun. Áður hefir ríkið tekið einkasölu á annari líkri vöruteg., sem eru viðtæki. Eins og öllum er kunnugt, grundvallaðist sú stofnun á þeim rökum, að með einkasölufyrirkomulagi væri hægt að tryggja tvennt í senn, góð og heppileg tæki og ríkissjóði nokkrar tekjur. Hin ástæðan fyrir þessu frv. er því sú, að verzlunarálagning á þessar vörur geti flotið í ríkissjóðinn. Í þeirri verzlun, sem við eigum nú við að búa á þessum vörum, er álagningin töluverð, og eru því nokkrar horfur á því, að hér geti orðið um tekjustofn að ræða fyrir ríkissjóð. Í grg. frv. eru færðar ástæður fyrir því, að réttara þótti að hafa þessi l. í heimildarformi fremur en beina skipun, vegna þess, að auðsætt er, að allmikinn undirbúning og rannsókn þarf áður en einkasala er hafin. Það verður t. d. ekki um það sagt, að svo vöxnu máli, hvort rétt er að taka vöruteg. allar í einu eða smátt og smátt. En áður en þessi nauðsynlegi undirbúningur hefst, þarf heimild fyrir einkasölunni. Alþ. hefir getið fordæmi fyrir slíkum einkasölum áður. Það var fyrir eina tíð hér einkasala á olíu og sömuleiðis heimild fyrir einkasölu á benzíni. Þannig hafa verið heimildir til fyrir slíkum einkasölum sem þessari, og vísa ég til þeirra fordæma, ef einhverjum kann að þykja athugavert að samþ. þessa heimild. Í grg. frv., sem flutt var að minni tilhlutun í hv. Ed., hefi ég fært fram rök fyrir þessum ástæðum, og leyfi ég mér að vísa til þeirra. Það mætti kannske um það spyrja, hver yrði hagnaður af einstökum teg., en sökum þess, að undirbúningstíminn hefir verið stuttur, hefir ekki unnizt tími til þess að rannsaka það að svo stöddu máli. Það fer vitanlega nokkuð eftir því, hvernig verzlunin verður framkvæmd, en slíkt kemur fram við nánari athugun. Ég ætla þá ekki að hafa þessi orð fleiri, en óska, að frv. verði vísað til hv. fjhn. að lokinni þessari umr.