11.12.1934
Neðri deild: 56. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2544 í B-deild Alþingistíðinda. (3836)
76. mál, einkasala á bifreiðum o.fl.
Frsm. minni hl. (Stefán Jóh. Stefánsson):
Það eru aðeins örfá orð út af þessum tveimur síðustu ræðum.
Hv. 5. þm. Reykv. sagði, að ég hefði gengið inn á, að málið væri illa undirbúið. Það er viðurkennt, að það sé æskilegt, að frekari rannsóknir verði látnar fram fara í þessum efnum, enda frv. byggt á því, þar sem það er í heimildarformi. Hinsvegar er það ætlun mín, að meginhlutinn af þessum vörum geti gefið arð, án þess að verð vörunnar hækki, og hægt sé því að hafa þessa verzlun til tekjuöflunar fyrir ríkissjóð án óhagræðis fyrir almenning.
Þessi sami hv. þm. sagði, að það yrði að vera sannað, að rekstrarkostnaður við verzlunina yrði minni með því að ríkið tæki hana í sínar hendur heldur en nú er. Ég hygg nú, að hv. þm. sé það ljóst, enda kom það fram á öðrum stað í ræðu hans, að því færri sem fara með þessa verzlun því minni verður kostnaðurinn. Reksturinn verður t. d. einfaldari og ódýrari með því, að einn hafi hann með höndum, heldur en tíu aðilar. Hv. þm. mun því vera mér sammála um það, að ekki sé heppilegt að hafa verzlunina á mörgum höndum, enda er hann sjálfur í samtakastarfsemi bóksala, sem m. a. mun vinna að því, að þeir séu ekki óeðlilega margir, sem stunda þessa atvinnugrein. Hv. þm. veit það vel, að hin frjálsa samkeppni er ekkert sáluhjálparmeðal í þessum efnum, heldur er það skipulagið.
Hv. þm. talaði um það, að afstaða mín og flokks míns mótaðist bara af því, að þetta væri einkasala. Þetta er ekki rétt hjá hv. þm., ég lít ekki á einkasölu yfirleitt sem sáluhjálparatriði, og það mætti benda á fleiri en eina teg. einkasölu, sem við Alþýðuflokksmenn teldum vafasamar og vart tímabærar. Einkasala sem slík er okkur ekkert programatriði, hinsvegar viðurkennum við, að það er oft heppileg leið til tekjuöflunar fyrir ríkissjóð og til þess að koma á bættu sölufyrirkomulagi. Það færi betur, ef Sjálfstfl. hefði eins heilbrigð sjónarmið á þessu máli og væri eigi bara á móti frv. af því, að hér er um einkasölu að ræða.
Út af ræðu hv. þm. Ak. vil ég segja það, að það er vitanlega skoðanamunur hjá okkur á þessu máli. Hann vill ekki, að ríkið hafi einkasölu á öðru en munaðarvöru, t. d. vini og tóbaki, og álítur, að einkasalan hafi aðeins eitt takmark, sem sé tekjuöflun fyrir ríkissjóð. Þessi hv. þm. gengur alveg framhjá því, að einkasalan getur komið á hagkvæmu sölufyrirkomulagi og ríkissjóður jafnhliða haft sínar tekjur af henni án þess að varan hækki í verði. Sá gróði, er áður féll til fárra einstaklinga, fer þá til ríkisins.
Hv. þm. Ak. taldi vafa á því, að hagnaður yrði af einkasölu á bifreiðum, því að höft væru á innflutningi þeirra. Það fer ekki hjá því, að alltaf verður einhver sala þrátt fyrir höftin, en annars er mestur hagnaðurinn á sölu varahlutanna.
Fróður maður um þessa hluti hefir sagt mér, að ef setja ætti saman bifreið úr varahlutum, sem annars kostar 1214 þús. kr., þá mundi hún kosta um 70 þús. kr., svo mikið er lagt á varahlutina. (PHalld: Heldur hv. þm., að sá gróði renni til seljenda hér?). Ég ætla, að góður bróðurhluti renni til þeirra, þótt nokkuð kunni að renna til verksmiðjanna. Hv. þm. Ak. sagði um mótorana, að þessi breyt. yrði til óhagræðis fyrir almenning. Ég ætla nú, að einfalt verði að halda sama skipulaginu, að menn geti fengið þá eins og nú, upp á afborganir, með áskildum eignarétti seljanda.
Hv. þm. gat þess, að vafasamur hagnaður mundi verða af raftækjum, vegna þess að jafnan væri hætt við úrgangi, að vörur lægju á lager og seldust ekki. Það er aðgætandi, að þetta nær aðeins til eins hluta af rafmagnsvörum, sem sé lampanna, en eins og frv. ber með sér nær það til rafmagnsmótora, rafmagnsvéla og vélahluta, rafgeyma og rafhylkja, rafmagnslampa, glóðarlampa, rafmagnsmæla o. s. frv. Ég hygg, að allar þessar vörur, sem taldar eru upp í d-lið 1. gr., séu ekki svo lágt verðlagðar nú, að eigi megi hafa hagnað af sölu þeirra án þess að verðið sé hækkað.
Ég mun svo eigi fjölyrða meira um þetta, ég held, að ræður þessara tveggja hv. þm. hafi ekki gefið ástæðu til frekari aths.