29.10.1934
Efri deild: 24. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 1458 í B-deild Alþingistíðinda. (3878)

34. mál, bráðabirgðaútflutningsskýrslur

Frsm. (Jón Auðunn Jónsson):

Við nánari athugun frv. kom það í ljós, að það vantaði ákvæði um, hver tiltæki dagsektir samkv. 8. gr. frv. Það hefir því komið fram till. um, að lögreglustjóri gerði það og tilkynnti upphæðir dagsekta bréflega. Aðrar breyt. eru einungis orðabreyt. og hefir frv. sumstaðar verið fært til betra máls. Ég vænti svo, að hv. d. samþ. þessar breytingar.