15.12.1934
Efri deild: 62. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2788 í B-deild Alþingistíðinda. (3924)

66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum

Forseti (EÁrna):

Mér hefir borizt svo hljóðandi skrifl. brtt. við brtt. á þskj. 811, frá hv. þm. S.-Þ.: „Ráðh. getur einnig látið sérstök ákvæði gilda um mannflutninga samkv. þessum l. á bifreiðum, sem hafa fasta flutninga á framleiðsluvörum bænda að aðalstarfi.“

Það þarf afbrigði til þess að þessi brtt. megi koma hér til umr. á þessum fundi, og vil ég hér með leita þeirra.