18.12.1934
Efri deild: 64. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 2803 í B-deild Alþingistíðinda. (3943)

66. mál, fólksflutningar með fólksbifreiðum

1) BSt:

Ég er að sönnu samþykkur efni þessarar till., þar sem ég hefi flutt hana upphaflega, en með því að komið hefir yfirlýsing frá hæstv. stj. um það, að þetta atriði verði framkvæmt á þann hátt, sem brtt. mælir fyrir, sé ég ekki ástæðu til, að sett verði um það ákvæði í l., og greiði því ekki atkv.