02.11.1934
Neðri deild: 28. fundur, 48. löggjafarþing.
Sjá dálk 32 í C-deild Alþingistíðinda. (4045)
46. mál, ráðstafanir vegna fjárkreppunnar
Jón Pálmason:
Ég geri ráð fyrir, að allir hv. þdm. séu samþykkir þessari dagskrártill., og er ekki ástæða til að hafa um hana mörg orð. En út af þeim orðum hv. þm. N.-Þ., að það stafaði af þekkingarleysi mínu og annara, er við teldum frv. óþarft, vil ég aðeins benda hv. þm. á, að þarna er um misskilning að ræða hjá honum, því að það, hverja meðferð mál hefir fengið á þingi, sannar ekkert um það, hvernig l. beri að skilja; það sýnir einungis, hver endanleg afgreiðsla þess hefir orðið. Og endanleg afgreiðsla þessa máls hefir orðið þann veg, að það beri að skilja eins og hv. landbn. gerir.
Hv. frsm. n. hefir í ræðu sinni skýrt rétt frá afstöðu n. Það, sem ég sagði, var einungis það, að n. hefði ekki verið sammála um þetta atriði.